lørdag den 27. oktober 2007

já þá er að láta allt fjúka.... vandamálið með mig og blog er að ég veigra mér við að skrifa af því að það tekur allt of langan tíma þar sem ég þarf að yfirvega hverja setningu vel og vandlega áður en ég skrifa hana.
Í dag héldum við formlega upp á 3. ára afmælið hennar AÍ. Eftir mikla baráttu inn á baði fyrir framan spegilinn, kom ég henni í þann kjól sem ég vildi hafa hana í (ef hún mætti ráða væri hún alltaf í buxum) og fékk að setja í hana tíkó (sem er mjög merkilegt því hingað til hefur hún þverneitað að vera með hár eins og Lína Langsokkur). Afmælið gekk eins og í sögu, AÍ var dáldið feiminn eins og venjulega þegar fólk sýnir henni meiri athygli en hún er vön- en var óskaplega glöð með allar gjafirnar, um leið og allir voru farnir, og hún gat farið að leika sér. Hún fékk t.d. eins konar perlur sem maður þarf ekki að hita til að haldist saman. Perlurnar eru frekar litlar og erfiðar, og í því sem AÍ var að prófa þær í fyrsta skiptið heyrði ég nýjasta frasann hennar.................. fyrst heyri ég nokkuð MARGAR perlur detta í gólfið og svo heyrist frá þeirri stuttu: "for helvede, for helvede, for helvede"!!!!! Veit ekki hvaðan barnið hefur þetta, allavega ekki frá mömmu sinni, heheh:)
Auður Ísold er að mörgu leiti sérstakt barn. Hún er skýr og skörp, taldi upp á 20 á tveggja ára afmælinu sínu, talar mikið og rétt og unir sér mjög vel. En hún er jafnframt þrjóskari en allt sem þrjóskt er og kom það snemma í ljós. T.d. kastaði hún upp á hverju miðvikudagskvöldi í heilt ár þegar mamman fór í saumaklúbb og hún var skilinn eftir hjá pabba sínum (þ.e. grenjaði þar til hún kastaði upp), hún fer ekki að sofa á kanínu (n.b. kanína hefur týnst tvisvar fyrir utan heimilið og í bæði skiptið hefur endað með að við höfum farið út að leita og sem betur fer fundið), hún neitar að nota klósett eða kopp, þótt hún finni mætavel hvenær hún þarf á klóið, og getur haldið í sér í 8 tíma...... áður en hún biður um bleyju. Hún harðneitar að láta greiða sér og það er langt síðan ég hætti að kaupa á hana föt án þess að hafa hana með í för (henni finnst mamma sín nefnilega hafa frekar lélegan fatasmekk). En þrátt fyrir þessa þrjósku er hún yndislegasta, fallegasta og skemmtilegasta stelpa í heimi.
Ég verð þó að viðurkenna að ég er ansi fegin að það eru allavega 8 ár þar til hún kemst á hinn skemmtilega unglingaaldur. Ég vona svo sannarlega að hún verði búin að læra að hafa stjórn á þrjósku sinni þegar þar að kemur.

kveðja Védís, hin kvíðafulla móðir.

7 kommentarer:

Anonym sagde ...

til hamingju með stúlkuna... hún er BARA frábær og á BARA gott skilið.... e.s það er gott að vita hvað maður vill, það kemur manni áfram í lífinu! ;)

Anonym sagde ...

Hæ til hamingju með stelpuna, þetta kemur sér bara vel í framtíðinni fyrir hana að vera svona þrjósk...hahah þó það sé erfitt fyrir ykkur! Komst því miður ekki í gær, vonandi var gaman. Sjáumst.

Anonym sagde ...

gleymdi að kvitta, þetta var dóra hahhaa

Anonym sagde ...

Aftur til hamingju með afmælið, öll sömul. Afi kannast ekki við neina þrjósku í litlu stelpunni. Það sést reyndar aðeins á tjaldvagninum frá því í sumar en það er bara vegna þrjósku í Ömmu og Afa sem vildu ráða.
Afi í Engjaseli

Anonym sagde ...

Innilega til hamingju með skvísuna, þrjóska er bara af hinu góða þá á hún eftir að ná langt ;o) Við erum sko með ungling ..voða gaman getum kennt ykkur þegar þar að kemur :o) Hafið það sem best. Knús María, Jakob og skvísur

Heiða Björk sagde ...

Til hamingju með stóru og sjálfstæðu stelpuna ykkar :o)

Anonym sagde ...

Til hamingju með 3 ára stelpuna. Tíminn líður svo sannarlega:-) Bið allir að heilsa
kv. Matta og co